<$BlogRSDUrl$>

hvad er malid... ......hvad er malet? - segðu mér allt.


mánudagur, ágúst 25, 2003

FOO FIGHTERS 

Eins og margir vita er David Grohl söngvari Foo Fighters fYrrverandi Trommuleikari Nirvana, eins og glöggir menn muna kannski trommaði hann einmitt sem gestatrommari á nýrri plötu queens of the stone age, og einnig trommaði hann diskinn hjá jack black og félögum í tenaicius D plús það að hann lék djöfulinn í myndbandi þeirra við lagið tribute.


Dave Grohl byrjaði að spila á gítar og semja lög á táningsaldri, ásamt því að spila í mismunandi hardcore punk hljómsveitum. Í kringum 87-88 byrjaði Grohl í Washington bandinu Scream, sem trommuleikari. Þegar farið var að líða á seinnipart hljómsveitarinnar Scream, var Grohl á fullu að semja sitt eigið efni í studio í kjallaranum hjá vini sínum, Barrett Jones. Sumt af því efni kom fram á seinustu plötu Screams, Fumble. Eftir sumartúrinn ´90 hjá Scream, flutti Grohl til Seattle og byrjaði sem trommuleikari hjá Nirvana. Eftir að Nirvana tóku upp snilldarplötuna Nevermind, fór Grohl aftur til Washington og tók þar upp fullt af lögum, sem síðar var gefið út af hljómplötufyrirtækinu Simplie Machines, og hét sú KASETTA Pocketwatch. Mest allt árið ´92 var Grohl á fullu með Nirvana, en í fríum tók hann upp sólo efni með Barrett Jones, sem hafði þá flutt til Seattle. Þeir héldu upptökum áfram út fyrripart ´93 eða þangað til Grohl þurfti að taka upp In Utero með Nirvana. Grohl hafði verið að leika sér með þá hugmynd að gefa út aðra kasettu sumarið ´93, en var það aldrei framkvæmt. Í kjölfar sjálfsmorðsins hjá forsprakka Nirvana ´94, hélt Dave Grohl sig frá sviðsljósinu í nokkra mánuði. Haustið ´94 bókaði Grohl síðan stúdíó tíma, dróg Barrett Jones með sér og á aðeins EINNI VIKU tóku þeir upp saman það sem átti að vera sólo plata Dave´s en varð síðar að fyrstu plötu Foo Fighters. Þess má einnig benda á að Dave Grohl spilaði á öll hljóðfærin á þeirri plötu. Hann gerði u.þ.b. 100 eintök af henni og gaf vinum og samstarfsmönnum. Á engum tíma var sólo verkefnið hans Dave Grohl, orðið að uppboðsstríði hljómplötufyrirtækja. Í staðinn fyrir að setja af stað full time sólo feril þá ákvað hann að stofna hljómsveit. Í gegnum konuna sína kynntist hann Nate Mendel, fyrrum bassaleikara Sunny Day Real Estate. Áður en þeir kynntust, hafði söngvari Sunny Day, Jeremy Enigk, tekið upp kristna trú og hætt í bandinu, sem markaði endalok þess. Í kjölfarið þá byrjaði ekki einungis Nate Mendel, heldur fékk hann einnig fyrrum trommara Sunny Day, William Goldsmith til að koma líka. Fyrrum meðlimur hljómsveitarinnar Germs og Nirvana, Pat Smear, ákvað einnig að spila með. Hljómsveitin var nefnd eftir leyniþjónustu í seinni heimsstyrjöldinni sem átti að hafa rannsakað fljúgandi furðuhluti eða Foo Fighters. Þeir skrifuðu undir samning við Capitol Records árið ´95. Fyrsta plata þeirra, sem samanstóð einungis af sólo upptökum Grohl´s var gefin út 4 júlí, 1995. Hún slóg strax í gegn í bandaríkjunum og varð fyrsta smáskífan This is a call sem fékk vægast sagt mikla spilun í útvarpi vestanhafs. Snemma ´96 var platan orðin Platínum.

En áfram með söguna.Það var ekki fyrr en þeir gáfu út plötu númer 3 sem fékk nafnið nothing left to lose sem foo fighters fengu loksins uppreisn æru og með hitterunum "learn to flY" og "brakeout". eftir gott gengi nothing left to lose eyddi david töluverðum tíma í aukaverkefni og samdi lagið ONE sem notað var í kvikmyndinni orange county,hin verkerfnin má sjá hér að ofan.eftir stutt hlé tóku strákarnir sig til og sköpuðu seinna meistarstykkið sem fékk nafnið one by one og er sennilega ástæðan fyrir gífurlegum vinsældum foo fighters á íslandi,en hún inniheldur þá frábæru hittara "one by one" "low" "times like these"(myndbandið við lagið innihélt einungis aðdáendur hljómsveitarinnar sem sagt gaurarnir sem voru að henda draslinu í þá)En þrátt fyrir að breytingar hafi orðið í mannskipan bandsins á undanförnum árum hefur kjarninn alltaf verið einn maður og þann mann ætti sérhvert mannsbarn að þekkja og það er auðvitað snillingurinn DAVID GROHL.

Foo fighters fylgdu plötunni eftir út árið ´96 með frábærum túr, meðan lög einsog Big me voru að slá í gegn í útvarpinu. Í lok ´96 byrjaðu þeir að taka upp aðra plötu með upptökustjóranum Gil Norton. Meðan á þessum upptökum stóð hætti William Goldsmith í hljómsveitinni vegna ósættis við meðlimi hljómsveitarinnar. Þetta þýddi að Grohl þurfti að setjast á trommurnar og klára það sem eftir var að taka upp. Rétt fyrir útgáfu seinni plötunnar árið ´97, fannst staðgengill fyrir William, Taylor Hawkins, sem hafði áður verið trommuleikari hjá Alanis Morissette.
The Colour and the shape, fyrsta platan hjá þeim sem hljómsveit, var gefin út í maí ´97. Eftir útgáfu hennar hætti síðan gítarleikarinn þeirra, Pat Smear og kom Franz Stahl í staðinn, sem entist þó stutt. Árið ´99 var síðan platan There is nothing left to loose gefin út. Stuttu seinna var nýr gítarleikari ráðin, Chris Shiflett.


Perma | asa | mánudagur, ágúst 25, 2003 |

This page is powered by Blogger. Isn't yours?