<$BlogRSDUrl$>

hvad er malid... ......hvad er malet? - segðu mér allt.


sunnudagur, febrúar 06, 2005

hey 

sunnudagsmygla sem heilsar héðan úr vinnuni. hér verð ég til 8 í fyrramálið, sniff, en fer síðan í skólann. harkan 6 , ha!!!! sofa hvað?

ég hef ekki tekið eftir því að ég sé að taka þetta háskólanám alvarlega, allavega verð ég að læra helst daglega til þess að eiga séns í flottar einkanir. en fékk þó nokkuð góðar einkanir síðustu önn, og meira segja tvær 8 ur og eina 8,5!!
en já nú verður menningarása við líði og ekkert meira helvítis fyllerí fyrir alkóhólistann mig. enda tapast hugurinn og maður verður frekar leiðinlegur. ég mæli hins vegar eindregið með því að mæta á tónleika á miðvikudaginn, á trúbador sem er vinur hennar judithar. hann er alveg afskaplega sjarmerandi maður!

þar sem ég er búin að djamma stanslaust í 3 ár núna, verður þetta að stoppa. heldur svekkt að hafa misst af hjálmum bæði kvöldin um helgina, en kann hins vegar að meta hvað margir eru farnir að hlusta á þessa tæru snillinga.

þeir sem hafa áhuga á því að koma í eskihlíðina á kvöldin mega hafa samband við mig, hlusta á góða tóna, læra, mála, ræða heimsmálin eða iðka önnur hobbý er það velkomið, enda er þörf á slíku á þessum síðustu og verstu tímum. ég verð allavega að fara læra! og hugsanlega teikna eitthvað og svona, vinna með myndir.

já og rán ef þú lest þetta, þakka ég boðið um helgina og vona að þú hafir skemmt þér vel. þú ert alveg sérlega velkomin í kaffi, hvenær sem er þegar ég er ekki í skólanum eða vinna. hef nú ekkert hitt þig í hálfann mánuð!

dagarnir eru svo fljótir að líða....... hvenær varð árið 2005???? og hvað í andskotanum verður maður eða gerir í framtíðinni?? JAHH maður spyr sig, en eitt er víst eins og ásta sagði, maður er allavega á leiðinni þó svo maður viti ekki hvert hvar eða hvernig. ég upplifi sjálfa mig sem afar óþroskaðann einstakling (sem er ekki endilega neikvætt) og í raun er ég bara svona 19 ára. ekki 23 ÁRA!!!

heh ok smá tilvistarkreppa. vil einnig nota tækifærið og óska auði til hamingju með afmælið, og kasta kveðju til allra útlandapésa hvort sem þeir eru á spáni , argentínu , danmörku eða svíþþjóð.

ása.

Perma | asa | sunnudagur, febrúar 06, 2005 |

This page is powered by Blogger. Isn't yours?