<$BlogRSDUrl$>

hvad er malid... ......hvad er malet? - segðu mér allt.


föstudagur, apríl 14, 2006

theremin rocks 

Hljóðfærið theremin var fundið upp árið 1920 (sumar heimildir segja 1919) af rússneska vísinda- og tónlistarmanninum Lev Sergeyevich Termen, betur þekktur sem Léon Theremin. Hljóðfærið var eitt fyrsta rafhljóðfærið í heiminum og var ennfremur fyrsta hljóðfærið sem hægt var að leika á án snertingar.Theremin-hljóðfærið lítur út eins og hálfgerður kassi með tveimur loftnetum. Spilað er á það tvíhent; önnur höndin stjórnar tónhæð og hin styrk hljóðsins, og er það gert með því að færa hendurnar nær eða fjær loftnetunum, allt eftir því hvort hækka eða lækka á hljóðið. Hljómblærinn er allsérstakur; menn geta helst ímyndað sér hvernig theremin hljómar með því að hugsa sér "geimveruhljóð" í gömlum bíómyndum. Hægt er að nálgast allmörg tóndæmi á síðunni thereminvox.com.Theremin hefur tóngjafa sem sífellt gefa frá sér tóna af tíðni sem er of há til að mannseyrað greini hana. Hljóðbylgjurnar sameinast síðan og mynda nýja bylgju eins og er útskýrt nánar í svari við spurningunni Hvað ákveður nákvæmlega tónhæð hvers tóns? Tíðni þessarar samsettu bylgju er nógu lág til að fólk geti heyrt hana sem hljóð. Loftnetin tvö geta breytt eiginleikum hljóðbylgnanna; annað hefur áhrif á tíðni (sem við skynjum sem tiltekna tónhæð), en hitt hefur áhrif á sveifluvídd (sem við túlkum sem styrkleika hljóðs). Sá sem leikur á theremin getur síðan aftur breytt eiginleikum loftnetanna, allt eftir því hversu nálægt þeim hann fer. Líkja má þessu við þau áhrif sem fólk getur haft á óskýrar sjónvarpsútsendingar; standi það á tilteknum stað getur það gert útsendinguna skýrari en standi það á öðrum stað getur það truflað hana. Þannig getur fólk því spilað á theremin án þess að snerta það.Vilji menn kynna sér nákvæmari útlistingu á virkni theremins er þeim bent á síðuna The theremin: How it works.


-tekið af vísindavefnum

Perma | asa | föstudagur, apríl 14, 2006 |

This page is powered by Blogger. Isn't yours?