<$BlogRSDUrl$>

hvad er malid... ......hvad er malet? - segðu mér allt.


miðvikudagur, september 27, 2006

æj æj 

magaverkur hefur eyðilagt fyrir mér tímann.. oj oj vírus

en segiði mér.. hvar getur maður fengið sér sætann hund??
where o where o where.


(ég er að spá í að fá mér hund. )

Perma | asa | miðvikudagur, september 27, 2006 |

mánudagur, september 25, 2006

það er komið 

það er komið, myndband við lagið like a pen með knife.

enjoy
http://www.brillerecords.com/The_Knife_Like_A_Pen/Med.html

Perma | asa | mánudagur, september 25, 2006 |

þriðjudagur, september 19, 2006

á maður sig ekki sjálfur? 

nú, ef maður missir (út)lim eru engin lagaákvæði , eða samkvæmt íslenskum lögum engin sem eru nógu skýr þess efnis að maður megi ekki eiga sjálfann sig. Vísindavefurinn reynir að svara þessari spurningu sjá hér: http://www.visindavefur.hi.is/index.asp?url=svar.asp?id=6192

Sumir hinsvegar vita ekki afþví að þeir séu að gefa sjálfann sig, svo sem eins og getnaðarlim heiladauðs manns, svo hann fær engu um það ráðið hvort hann fái yfirhöfuð að nota sjálfann sig eða hvort einhver annar fái að afnot af limum hans. Í þessu tilfelli getnaðarlimi: http://mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1224371

manninum ,hinsvegar , sem fékk á sig ágrædda lim hins heiladauða hefur ákveðið að honum finnist þetta of creepy, lét fjarlægja hann.

hver á hann núna?

Perma | asa | þriðjudagur, september 19, 2006 |

miðvikudagur, september 13, 2006

ímyndum/ýmindum 

okkur hláturskviðurnar sem ólguðu inn í mér þegar ég las sagnfræðilega greiningu 12 ára grunnskólanema á skáldinu Halldóri Lazness.

hahahhhhhhhhahahahahaha. talandi um að breyta stafsetningu, málfari eða stíl. Það gerði Laxness sjálfur.

Perma | asa | miðvikudagur, september 13, 2006 |

bíddu 

hvað er ég eiginlega að lesa í skólanum?
Evuklæði getur aðeins átt við klæði þessarar formóður okkar fyrir syndafallið en þau Adam áttu ekki heima á Íslandi.

annars er ég kvefuð ennþá god damn it og búin að missa trúnna á léttklæðnað í frosthörkum haustmánaða. Loksins.

Perma | asa | miðvikudagur, september 13, 2006 |

mánudagur, september 11, 2006

þar sem 





ég talaði langt og ýtarlega fyrir nokkru síðar hérna að mig langaði í hund...
Þá ætlaði ég að fara aðeins ýtarlega út í það.
Hundurinn er besti vinur þinn og þar sem hann er besti vinur þinn er góð ummönnun lykilinn. Ég fæ ekki nóg af hundum og best væri ef hann hefði mikinn persónuleika. Nú, s.s. , þarf maður að hafa tíma og kannski svolitla peninga. En þá kemur spurninginn, hvernig tegund ætti maður að velja sér?


Hundar geta verið mjög Latir en það er einnig persónueinkenni sem t.d. ég kannast við svo það er í lag upp að vissu marki. Persónuleikinn var s.s. eitt af því sem ég spáði í og sérstaklega þegar

Ég var að horfa á Osbournes þættina sem ég keypti mér á DVD. Þar fylgdist maður með bulldognum Lolu sem á sér engann líkann. Ég fæ hláturskast bara við tilhugsunina. Hvílíkur persónuleiki! Hahaha alltaf eitthvað grumpy með skoðanir en getur líka týnt sér í að leika sér með eitthvað einfalt.

Nú einnig fer maður að hugsa á maður að kaupa ser einhvern lítinn hund sem líkjist manni soldið sjálfur? Þetta hár , skil ég, ég ber skilning fyrir óreiðukenndu útliti og því gæti það spilað inn í val á hundi þó svo ég sé á móti því að borga morðfjár fyrir eitthvað hreinræktað o.s.f.v. Hundar eru jú lífverur sem á að bera virðingu fyrir. Hreinræktað? Eru t.d. til hreinræktaðir íslendingar? anywho... lets keep on going. þreytt í hendi og hætt að nota stóra stafi..

Þetta er hinsvegar vond mynd af hundi, Oddi er vitlaus og einfaldur. Kann samt vel að meta hann þó að Grettir sé meira í uppáhaldi. Hundar eru ekki svona vitlausir , kommon. (ekki allir hehe)

allavega hundar eru yndislegir og ég er líka á móti því að fólk fái sér gæludýr, hafi síðan ekki tíma fyrir þau og leysi vandann með að lóga þeim. Skamm, skamm.

ása litli kvefpési kveður að sinni hóst, hóst.


Perma | asa | mánudagur, september 11, 2006 |

miðvikudagur, september 06, 2006

lífið 

maður á bara að taka lífinu rólega.. stress er oftast 80% meira en maður þarf að stressa sig í raun og veru. hvernig væri bara að breyta því sem maður getur breytt og sætta sig við það sem verður ekki breytt og láta sér líða vel eins og Friðdóra orðaði það. Nú er um að gera að vera duglegur í ritgerðarskrifum og kúrsum og kvikmyndahátíð því senn líður að útskrift og svona! hafiði það gott eins og ég sagði seinast, útlandapésar. og ég heimta að einhver komi í afmælið mitt af þeim sem eru eftir heima!

Perma | asa | miðvikudagur, september 06, 2006 |

mánudagur, september 04, 2006

æj 

steve irwin er dáin. sjá:http://news.yahoo.com/s/ap/20060904/ap_on_en_tv/obit_irwin
að hugsa sér samt að maðurinn hafi getað umgengist nær öll dýr og náttúruna hingað til.

ætlar einhver að horfa á magnavökuna?
og já erly... mew disksins míns er sárt saknað.. ertu nokkuð búin að kaup þann nýja? im gonna!

heilsur til danmerkur, sviþjóðar , noregs og englands.

Perma | asa | mánudagur, september 04, 2006 |

This page is powered by Blogger. Isn't yours?